
Aðalfundur Kyrrðarbænarsamtakanna á Íslandi var haldinn 27. apríl í Fella- og Hólakirkju. Bylgju Dís Gunnarsdóttur formanni, sem féll frá á síðasta ári var vottuð virðing og henni þakkað fyrir öflugt formannsstarf fyrir samtökin. Farið var yfir helstu verkþætti síðasta árs. Sérstaklega má minnast þess hér að Kyrrðarbænarsamtökin á Íslandi fengu rausnarlegan styrk frá Contemplative Outreach til að láta þýða Kyrrðarbænarappið Centering Prayer yfir á íslensku. Nína Leósdóttir þýddi og stjórn Kyrrðarbænarsamtakanna aðlagaði það að íslenskum veruleika með því að velja nokkrar íslenskar bænir sem voru settar þar inn. Appið virkar fyrir alla snjallsíma og hægt er að hlaða því niður af Playstore eða Appstore.
Þrjú gengu úr stjórn, þau Regína Rósa Harðardóttir, Ívar Valbergsson og Einar Benedikt Gröndal og eru þeim þökkuð vel unnin störf. Nýir inn í stjórn eru Henning Emil Magnússon og Sigurður Vignir Jóhannsson. Þau sem voru endurkjörin í stjórn eru Ingunn Björnsdóttir, Jón Snorrason, Sigurbjörg Þorgrímsdóttir, Ruth Guðmundsdóttir og Bára Friðriksdóttir. Myndin er af aðalmönnum í stjórn.
14. maí 2026