
Boðið er til aðalfundar Kyrrðarbænarsamtakanna á Íslandi (Contemplative Outreach á Íslandi) mánudaginn 27. apríl 2026 kl. 19.30. Fundurinn fer fram í safnaðarheimili Fella- og Hólakirkju.
Dagskrá:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Skýrsla stjórnar lögð fram
3. Reikningar kynntir og bornir fram til samþykktar
4. Starfsáætlun næsta árs kynnt
5. Lagabreytingar
6. Kosning stjórnar
7. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga til eins árs
8. Önnur mál
Verið öll hjartanlega velkomin.
Stjórn Kyrrðarbænarsamtakanna.
Tillögur að lagabreytingum eru sem hér segir:
3. gr. óbreytt
Tilgangur félagsins er að skapa samfélag um kyrrðarbæn, að stuðla að útbreiðslu bænarinnar, bjóða upp á kyrrðardaga, lesefni og stuðning við iðkendur bænarinnar.
3. gr. með breytingum:
Tilgangur félagsins er að skapa samfélag um Kyrrðarbænina, að stuðla að útbreiðslu bænarinnar, bjóða upp á kyrrðardaga, lesefni og stuðning við iðkendur bænarinnar.
4. gr. óbreytt
Tilgangi sínum hyggst félagið ná með því að kynna og kenna Kyrrðarbænina og halda námskeið fyrir verðandi leiðbeinendur.
4. gr. með breytingum:
Tilgangi sínum hyggst félagið ná með því að kynna og kenna Kyrrðarbænina samanber 3. gr. og halda námskeið fyrir verðandi leiðbeinendur.
6. gr. óbreytt
Stjórn félagsins skal skipuð fimm félagsmönnum. Stjórnarmenn skulu kosnir til tveggja ára í senn. Stjórnin skiptir með sér verkum.
Stjórnin fer með málefni félagsins milli aðalfunda. Formaður boðar stjórnarmenn á stjórnarfundi þegar þurfa þykir. Til að fundur teljist löglegur þurfa þrír af fimm aðalmönnum að mæta.
Heimilt er að hafa allt að fimm varamenn í stjórn. Ef ekki tekst að finna varamenn á aðalfundi hefur stjórnin heimild til að finna aðila til að gegna hlutverki varamanna. Starfstímabil félagsins er almanaksárið.
6. grein með breytingum:
Stjórn félagsins skal skipuð fimm félagsmönnum. Stjórnarmenn skulu kosnir á aðalfundi félagsins til tveggja ára í senn og ganga tveir úr stjórn annað árið en þrír hitt. Stjórnin skiptir með sér verkum.
Stjórnin fer með málefni félagsins milli aðalfunda. Formaður boðar stjórnarmenn á stjórnarfundi þegar þurfa þykir. Til að fundur teljist löglegur þurfa þrír af fimm aðalmönnum að mæta.
Heimilt er að hafa allt að fimm varamenn í stjórn og skulu þeir kosnir til eins árs. Ef ekki tekst að finna varamenn á aðalfundi hefur stjórnin heimild til að finna aðila til að gegna hlutverki varamanna. Starfstímabil félagsins er almanaksárið.
7. gr. fyrsti liður óbreyttur
Á aðalfundi félagsins skal stjórn gera upp árangur liðins árs. Aðeins félagsmenn mega vera þátttakendur á aðalfundi.
Aðalfund skal halda eigi síðar en 31. maí ár hvert og skal boða til hans með að minnst þriggja vikna fyrirvara með sannanlegum hætti.
7. gr. fyrsti liður með breytingum:
Á aðalfundi félagsins skal stjórn segja frá starfsemi liðins árs. Aðeins félagsmenn mega vera þátttakendur á aðalfundi.
Aðalfund skal halda eigi síðar en 31. maí ár hvert og skal boða til hans með að minnst þriggja vikna fyrirvara með sannanlegum hætti.
6. apríl 2026