Nýlega hófu tveir bænahópar aftur göngu sína eftir hlé og er þeim fagnað og óskað Guðs blessunar. Í Lágafellskirkju er iðkuð Kyrrðarbæn á miðvikudögum kl 17:30. Umsjónarfólk eru sr. Henning Emil Magnússon, Arna Harðardóttir og Erla Björg Káradóttir.
Á þriðjudögum er Kyrrðarbæn kl 17:30 í Landakirkju í Vestmannaeyjum. Þær Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir, Sigurbjörg Jónsdóttir, Vera Björk Einarsdóttir og Þóranna M. Sigurbergsdóttir halda utan um starfið. Þóranna veitir upplýsingar á netfanginu thorannams@gmail.com en hún ritaði ágæta grein um iðkun Kyrrðarbænar á heimasíðu Tíguls, sjá má greinina með því að smella hér.

22. febrúar 2026

Deildu þessari færslu.