Kyrrðardagur var haldinn í Grensáskirkju 31. janúar 2026. Þátttaka var vonum framar en 38 manns nutu sameiginlegra kyrrðarstunda og hvíldar. Kyrrðarbæn er bænaseta í þögn með ákveðinni aðferð þar sem nærvera og verkun Guðs er samþykkt með bænarorði. Sigurbjörg Þorgrímsdóttir leiddi hópinn í Fagnaðarbæn sem er skyld Kyrrðarbæninni en þar felst aðferðin í að samþykkja nærveru og verkan Guðs í líkamlegum og tilfinningalegum viðbrögðum okkar gagnvart atburðum og aðstæðum í daglegu lífi.
Léttur hádegisverður var í boði, gagnlegar bækur á borði til að glugga í, gengið að borði Drottins og rúmur tími til hvíldar og íhugunar. Sumir mættu með íþróttadýnur, aðrir með útivistarföt til að styrkja sig. Besta hrósið eftir daginn fannst formanninum þegar ein konan nefndi að þetta hefði bara verið alveg eins og kyrrðardagar í Skálholti. Það er hægt að hverfa inn á við og frá asasótt nútímans með kyrrðardegi í borg. Skipuleggjendur þær Bára Friðriksdóttir, Ingunn Björnsdóttir og Sigurbjörg Þorgímsdóttir þakka kokkinum og sjálfboðaliðanum Jósef Kristjánssyni sérstaklega fyrir sitt framlag sem og öllum þátttakendum sem gerðu daginn jafn góðan og hann varð.

5. febrúar 2026

Deildu þessari færslu.