Í nærveru …

Kyrrðardagar á Löngumýri 30. apríl – 5. maí 2026
Kyrrðardagar á vegum Kyrrðarbænarsamtakanna á Íslandi verða á Löngumýri í Skagafirði dagana 30. apríl – 5. maí 2026. Ingunn Björnsdóttir og sr. Bára Friðriksdóttir leiða dagana.
Það gefst gott rými og stuðningur á kyrrðardögunum við að skoða og dýpka sambandið við Guð (æðri mátt) með daglegum viðtölum í andlegri handleiðslu og sálgæslu sem Ingunn og Bára veita. Áhersla er lögð á iðkun Kyrrðarbænar og mikla þögn. Dagskráin, umhverfið og umgjörðin öll styður við kyrrðarupplifunina.
Viðtölin snúast um að hlúa að fólki á trúargöngunni í því umbreytingar- og þroskaferli sem hún hefur í för með sér. Í andlegri handleiðslu og sálgæslu mætum við fólki þar sem það er, hægjum á, hlustum og hlúum að eftir því sem andinn leiðir okkur til.
Verð: 98.000 kr. Allt er innifalið í verðinu nema ferðin á staðinn. Ef einhver er ekki á bíl er hugsanlega hægt að fá far með öðrum þátttakendum. Staðfestingargjald er 30.000 kr. sem greiðist við skráningu og er óendurkræft. Staðfestingargjaldið er greitt með því að leggja inn á eftirfarandi reikning:
Kennitala: 450613-1500
Reikningur: 0114-26-1513
Langamýri í Skagafirði stendur í fallegu umhverfi við Varmahlíð. Aðstaðan er góð en á staðnum er bæði sundlaug og heitur pottur, kapella, notaleg setustofa, bjartur matsalur og fallegur garður svo eitthvað sé nefnt. Starfsfólk Löngumýrar hafa sýnt okkur mikla gestrisni og tekið einstaklega vel á móti okkur undanfarin ár.
Kyrrðarbænarsamtökin á Íslandi hafa staðið fyrir kyrrðardögum í allt að 15 ár og leggja alúð við að standa vörð um kyrrðina og að gera dvölina ánægjulega.
Nánari upplýsingar veita: Ingunn Björnsdóttir, í síma 8448816 og Bára Friðriksdóttir, í síma 8919628 eða í gegnum kyrrdarbaen@kyrrdarbaen.is.

Um Ingunni

Ingunn Björnsdóttir

Ingunn hefur tekið þátt og unnið í kirkjulegu starfi í áratugi þar sem hún hefur sinnt sálgæslu, fyrirbænastarfi, samkirkjulegu starfi og setið í fagráði kristinna kirkna um meðferð kynferðisbrota. Hún hefur lokið tveggja ára námi í Spiritual Direction (Andlegri handleiðslu) á vegum Leadership Transformations Inc. og býður hún upp á einkaviðtöl þar að lútandi. Ingunn hefur kennsluréttindi í Kyrrðarbæn sem hún hefur iðkað um árabil ásamt því að leiða kyrrðarbænarhópa og kyrrðardaga. Hún lagði stund á sálgæslunám á vegum ISARPAC, Danmörku (International School of Abuse Realated Pastoral Counselling, nám með áherslu á að veita ráðgjöf og meðferð þeim sem orðið hafa fyrir ofbeldi og öðrum áföllum). Einnig við Institute in Christian Counselling. CWR, Surrey, U.K. Ingunn hefur sótt nám í Viðtalstækni og Hugrænni atferlismeðferð á vegum Endurmenntunarst. H.Í. Hún starfaði um árabil á geðsviði LSH sem áfengis- og vímuefnaráðgjafi á Teigi og í átröskunarteymi LSH.

 

Um Báru

Séra Bára Friðriksdóttir nýr formaður Kyrrðarbænarsamtakanna

Séra Bára Friðriksdóttir

Sr. Bára hefur ræktað trú sína yfir fjóra áratugi. Þegar hún kynntist Kyrrðarbæninni fyrir átján árum fann hún að hér var leið til enn meiri þroska í trú og hefur það fylgt eftir. Kyrrðarbænin og systurhefðir hennar, biblíuleg íhugun og fagnaðarbæn hafa verið henni ríkuleg viðbót við annað bæna- og trúarlíf. Hún hefur kennsluréttindi í Kyrrðarbæn. Bára vígðist til Vestmannaeyjaprestakalls árið 1998 og hefur starfað innan Þjóðkirkjunnar að miklu leiti síðan. Hún tók námskeið í sjúkrahúsprestsnámi (PCE) 2003 frá HÍ og diplómu í Fjölskyldumeðferðarfræði frá Endurmenntunardeild HÍ. Sömuleiðis lauk hún Norrænu meistaranámi í öldrunarfræðum frá HÍ 2016. Bára hefur einnig unnið með fötluðum.

1. febrúar 2026

Deildu þessari færslu.