Kyrrðarbænarsamtökin á Íslandi tóku þátt í Kirkjudegi Kjalarnesprófastsdæmis í Keflavíkurkirkju 24. janúar 2026. Suðurnesjamærin Regína Rósa Harðardóttir sá um Kyrrðarbæn í kapellunni og Ingunn Björnsdóttir og Sigurbjörg Þorgrímsdóttur voru með kynningarborð ásamt Rósu. Það var margt um manninn og margar málstofur. Söngur, gleði og helgihald litaði daginn. Þökk sé prófastsdæminu fyrir vel heppnaðan viðburð.

Sigurbjörg, Ingunn og Regína Rósa við kynningarbásinn.

Ingunn Björnsdóttir á kyrrðarbænarstund í kapellunni.

Regína Rósa leiðir kyrrðarbænarstund í kapellunni.

 

 

26. janúar 2026

Deildu þessari færslu.