
Kyrrðarbænarsamtökin á Íslandi gleðjast yfir því að nýr bænarhópur er að bætast við í flóru bænahópa í Kyrrðarbæn víðs vegar um landið. Fyrsta stundin var 15. janúar. Það er fagnaðarefni þegar stöðum fjölgar þar sem Kyrrðarbænin er höfð reglulega um hönd því þetta er bænaraðferð sem veitir jafnvægi, stöðugleika og blessun í lífsins ólgu sjó. Nóg er af þreytandi áreiti og ófriðlegt upplýsingastreymi til okkar dag hvern. Þá er gjöfult að geta sest í hóp með öðrum og stillt hugann inn á kyrrð og ró.
Séra Sigríður Munda Jónsdóttir í Þorlákshöfn og Margrét Guðjónsdóttir munu leiða stundirnar. Þær hafa báðar kennsluréttindi í Kyrrðarbæn og eru þaulreyndar í efninu.
Stundirnar verða í Þorlákskirkju á fimmtudögum klukkan 17 – 17:45. Verið öll hjartanlega velkomin. Fyrir þau sem eru að koma í fyrsta sinn er betra að koma 10 mínútum fyrr til að fá kennslu í þessari einföldu en ljúfu aðferð í þögn.
Kyrrðarbænarsamtökin óska þeim sr. Sigríði Mundu og Margréti velfarnaða á sinni vegferð.
20. janúar 2026