
Stjórn Kyrraðarbænarsamtakanna á Íslandi hefur skipt með sér verkum eftir fráfall Bylgju Dísar í haust og er eins og hér segir:
- Séra Bára Friðriksdóttir er nýr formaður
- Einar Benedikt Gröndal, varaformaður
- Ingunn Björnsdóttir, gjaldkeri
- Jón Snorrason, ritari
- Ruth Guðmundsdóttir, meðstjórnandi
- Regína Rósa Harðardóttir, varamaður
- Ívar Valbergsson, varamaður
- Sigurbjörg Þorgrímsdóttir, varamaður
Bára Friðriksdóttir
Bára hefur iðkað kyrrðarbæn frá árinu 2008 og hlaut kennsluréttindi í bæninni árið 2012. Hún heldur utan um vikulegar kyrrðarbænarstundir ásamt Ingunni Björnsdóttur í Grensáskirkju. Bára Friðriksdóttir vígðist til Vestmannaeyjaprestakalls árið 1998 og hefur starfað innan Þjóðkirkjunnar bæði út á landsbyggðinni og á höfuðborgarsvæðinu. Hún hefur haldið úti kyrrðarbænarstundum þar sem hún hefur þjónað. Bára hefur lokið norrænu meistaranámi í öldrunarfræðum og diplómu í fjölskyldumeðferðarfræði. Í dag starfar Bára sem verkefnastjóri Eldriborgararáðs Reykjavíkurprófastsdæma. Sömuleiðis sinnir hún fjölskyldumeðferðarvinnu á Grænuhlíð fjölskyldumiðstöð.
1. janúar 2026