“Gríptu daginn” – Íhugun – kyrrð – útivera
Kyrrðardagur í Mosfellskirkju verður laugardaginn 27. maí 2023.
Dagskrá frá kl. 9:00 til 11:00 í og við Mosfellskirkju.
Á kyrrðardeginum förum við í hvarf og tökum okkur hlé frá daglegri önn.
Þögnin og kyrrðin veita tækifæri til íhugunar, að mæta sjálfum sér og Guði, að sjá líf sitt í nýju ljósi, vinda ofan af og láta uppbyggjast og endurnærast á sál og líkama. Uppbygging er þannig að byrjað er á íhugun að hætti Kyrrðarbænarinnar, þá er gengið um í dalnum og að lokum er samverustund í kirkjunni.
Umsjón með deginum hafa prestar safnaðarins og veita gjarnan upplýsingar. Skráning er á netfangi safnaðarins, lagafellskirkja@lagafellskirkja.is eða í síma 5667113 á skrifstofu frá 9 -13 en einnig má bara mæta.
Ekkert gjald er tekið fyrir kyrrðardaga og öll sem hafa áhuga eru velkomin.