Boðið er til aðalfundar Kyrrðarbænasamtakanna á Íslandi (Contemplative Outreach á Íslandi) mánudaginn 1. maí 2023 kl. 19.30. Fundurinn fer fram í safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju.

Dagskrá:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Skýrsla stjórnar lögð fram
3. Reikningar kynntir og bornir fram til samþykktar
4. Starfsáætlun næsta árs kynnt
5. Lagabreytingar
6. Kosning stjórnar
7. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga til eins árs
8. Önnur mál

Léttar veitingar.
Verið öll hjartanlega velkomin.
Stjórn Kyrrðarbænasamtakanna.