Kyrrðarbænasamtökin á Íslandi ásamt Stórólfshvolskirkju bjóða upp á námskeið um Kyrrðarbæn laugardaginn 4. mars 2023 kl. 10-15 í safnaðarheimili Stórólfshvolskirkju á Hvolsvelli.

Kyrrðarbæn er íhugunaraðferð úr kristinni hefð sem hefur verið stunduð í einhverri mynd alveg frá frumkristni. Á námskeiðinu verður fjallað um þessa íhugunaraðferð, hún kennd og iðkuð.

Kyrrðarbæn er afar einföld iðkun sem fer fram í þögn og gengur út á að hvíla í nærveru Guðs og samþykkja verk heilags anda innra með okkur. Þótt aðferðin sé einföld hefur hún umbreytandi áhrif á iðkandann með auknum andlegum þroska sem leiðir m.a. til aukinnar sjálfsþekkingar og dýpra sambands við Guð og menn.

Kennarar námskeiðsins eru Margrét Guðjónsdóttir og Kristjana Friðbjörnsdóttir ásamt Sigurbjörgu Þorgrímsdóttur. Þær eru með kennsluréttindi í Kyrrðarbæn og hafa ástundað hana um langt árabil.
Verð: 4.000 kr. Innifalið er léttur hádegismatur og námsgögn. Hægt er að sækja um styrk fyrir námskeiðsgjaldi hjá margud55@gmail.com.

Skráning: https://kyrrdarbaen.skramur.is/input.php?id=13
Stuttu eftir skráningu fá þátttakendur kröfu í heimabankann sinn fyrir námskeiðsgjaldinu.
Ef spurningar vakna má senda tölvupóst á margud55@gmail.com.