Kyrrðarbænasamtökin á Íslandi bjóða upp á námskeið um Kyrrðarbæn laugardaginn 4. febrúar 2023 kl. 10-15 í Glerárkirkju Akureyri.

Kyrrðarbæn er íhugunaraðferð úr kristinni hefð sem hefur verið stunduð í einhverri mynd alveg frá frumkristni. Á námskeiðinu verður fjallað um þessa íhugunaraðferð, hún kennd og iðkuð.

Kyrrðarbæn er afar einföld iðkun sem fer fram í þögn og gengur út á að hvíla í nærveru Guðs og samþykkja verk heilags anda innra með okkur. Þótt aðferðin sé einföld hefur hún umbreytandi áhrif á iðkandann með auknum andlegum þroska sem leiðir m.a. til aukinnar sjálfsþekkingar og dýpra sambands við Guð og menn.

Kennarar námskeiðsins eru Regína Rósa Harðardóttir og Ruth Guðmundsdóttir ásamt Bylgju Dís Gunnarsdóttur mentori þeirra. Þær eru með kennsluréttindi í Kyrrðarbæn og hafa ástundað hana um árabil.
Verð: 4.000 kr. Innifalið er léttur hádegismatur og námsgögn.

Skráning: https://kyrrdarbaen.skramur.is/input.php?id=13
Stuttu eftir skráingu fá þátttakendur kröfu í heimabankann sinn fyrir námskeiðsgjaldinu.
Ef spurningar vakna má senda tölvupóst á kyrrdarbaen@kyrrdarbaen.is.