Kyrrðarbænasamtökin kynna Kyrrðardaga sem fram fara á Bergheimum, Sólheimum í Grímsnesi, dagana 26. – 29. janúar 2023

Kyrrðardagar veita einstakt tækifæri til að dvelja og endurnærast í mildi og kyrrð. Kyrrðarbænasamtökin á Íslandi standa fyrir þessum dögum og því er iðkun Kyrrðarbænar og Lectio divina í forgrunni. Gert er ráð fyrir að þátttakendur þekki Kyrrðarbænina og iðkun hennar.

Helgin fer að mestu leyti fram í þögn fyrir utan þá fræðslu sem boðið er upp á. Þögnin gerir fólki kleift að skoða hvað bærist innra með þeim og að hlúa vel að sjálfu sér. Boðið er upp á einstaklingsviðtöl fyrir þá sem það kjósa.

í Bergheimum, húsi líknar- vinafélagsins Bergmál, www.bergmal.is  eru 14 tveggja manna herbergi með salerni og sturtu og öll aðstaða stil fyrirmyndar. Gómsætur grænmetismatur verður framreiddur sem nærir líkamann og styður við þá innri vinnu sem gjarnan fer af stað í kyrðinni.

Um er að ræða langa helgi sem hefst á fimmtudegi kl. 18 og lýkur kl. 14 á sunnudegi.

Verð er 68.000 kr. og gert er ráð fyrir einum einstakling í herbergi nema fólk óski þess að vera með öðrum í herbergi.  Reikningur mun birtast inn á heimabanka þátttakenda. Ef forföll verða innan viku frá því að kyrrðardagarnir hefjast er gert ráð fyrir óendurkræfu skráningargjaldi sem eru 15.000 kr.

Vinsamlegast hafið samband ef einhverjir óska eftir að vera saman í herbergi.

Umsjón: Sr. Arndís Bernhardsdóttir Linn og Bylgja Dís Gunnarsdóttir.

Skráning: Smellið á þessa línu til að hefja skráningu.