Kyrrðarbænasamtökin á Íslandi bjóða upp á námskeið um Kyrrðarbæn laugardaginn 1. október kl. 10-16 í Ísl. Kristskirkju Fossaleyni 14, 112 Reykjavík.

Kyrrðarbæn er íhugunaraðferð úr kristinni hefð sem hefur verið stunduð í einhverri mynd alveg frá frumkristni. Á námskeiðinu verður fjallað um þessa íhugunaraðferð, hún kennd og iðkuð.

Kyrrðarbæn er afar einföld iðkun sem fer fram í þögn og gengur út á að hvíla í nærveru Guðs og samþykkja verk heilags anda innra með okkur. Þótt aðferðin sé einföld hefur hún umbreytandi áhrif á iðkandann með auknum andlegum þroska sem leiðir m.a. til aukinnar sjálfsþekkingar og dýpra sambands við Guð og menn.

Kennarar námskeiðsins eru sr. Bára Friðriksdóttir og Ingunn Björnsdóttir en þær eru með kennsluréttindi í Kyrrðarbæn og hafa ástundað hana um árabil.

Skráning: https://kyrrdarbaen.skramur.is/input.php?id=5

Verð: 4.000 kr. Innifalið er léttur hádegismatur og námsgögn.

Vinsamlegast greiðið þátttökugjald inn á eftirfarandi reikning:

Bn. 0114-26-1513

Kt. 450613-1500

Skýring: Kyrrðarbænanámskeið

Ef spurningar vakna má hringja í Ingunni í síma 8448816.