Námskeið um fyrirgefningu í Skálholti 17. – 20. febrúar 2022.

 Meðfram námskeiði um fyrirgefningu er iðkun Kyrrðarbænar þungamiðja helgarinnar ásamt léttum jógaæfingum og djúpslökun. Kyrrðin fær sitt vægi en hluti dagskrárinnar fer fram í þögn. Á námskeiði um fyrirgefningu er farið yfir:

· Ferli fyrirgefningar.

· Hvað fyrirgefning felur í sér og hvað ekki.

· Praktískar punkta og leiðir sem reynast vel á vegferð fyrirgefningar.

· Aðferð fyrirgefningarbænar sem er bæði kennd og iðkuð.

Dagskráin skapar rými fyrir kyrrð og næði til að líta inn á við sem umhverfi Skálholts styður fullkomlega við.

Um er að ræða langa helgi sem hefst á fimmtudegi kl. 18 og lýkur kl. 14 á sunnudegi.

Verð fyrir einn í herbergi með fullu fæði kr. 78.800.

Verð fyrir tvo í herbergi með fullu fæði fyrir tvo kr. 108.600

Skráningargjald, kr. 10.000, þarf að greiða með þriggja vikna fyrirvara. Kyrrðarbænasamtökin senda greiðsluseðil í heimabanka þátttakanda. Skráningargjaldið gengur upp í námskeiðsgjaldið en er óendurkræft ef hætt er við. Ef það er fullt á námskeiðið er hægt að skrá sig á biðlista.

Leiðbeinendur eru: Bylgja Dís Gunnarsdóttir, Sr. Elínborg Gísladóttir og Auður Bjarnadóttir jógakennari.

Skráning: Smellið hér til að hefja skráningu.

 Ef spurningar vakna vinsamlegast hafið samband: kyrrdarbaen@kyrrdarbaen.is eða hringið í síma 661 7719