Kyrrðarbænasamtökin á Íslandi bjóða uppá kyrrðardaga í Skálholti í janúar 2021. Um er að ræða langa helgi sem hefst fimmtudaginn 14. janúar kl. 18:00 og lýkur sunnudaginn 17. janúar kl. 14:00. Lögð er áhersla á iðkun Kyrrðarbænarinnar, Jóga, Jóga Nidra djúpslökun, fræðslu, hvíld og/eða útiveru. Æskilegt er að hafa þekkingu á iðkun kyrrðarbænarinnar eða annars konar hugleiðslu. Áhrifin af Kyrrðarbæninni, jógaæfingum, djúpslökun, fræðslu, útiveru og hvíld í Skálholti leggjast á eitt að skapa einstaka dvöl fyrir líkama, sál og anda. Hámarksfjöldi þátttakenda er 15 manns.

Verð: kr 47.500. Innifalið í verðinu er m.a. skráningargjaldið, einstaklingsherbergi með sér baði og fullu fæði.

Hægt er að sækja um styrk í starfsmenntunarsjóðum stéttarfélaga.

Umsjón: Sr. Arndís Bernhardsdóttir Linn, Sigurbjörg Þorgrímsdóttir, leiðbeinendur Kyrrðarbænarinnar og Auður Bjarnadóttir, jógakennari.

Skráning fer fram á heimasíðu Skálholts www.skalholt.is Framkvæmdastjóri veitir upplýsingar (leiðsögn við skráningu) í  síma 486 8870.

Nánari uppýsingar varðandi kyrrðardagana á netfanginu sigurth@simnet.is (Sigurbjörg) eða arndis.linn@lagafellskirkja.is (Arndís).