Námskeið um fyrirgefningu í Skálholti 10.-13. september 2020.

Kyrrðarbænasamtökin á Íslandi bjóða upp á námskeið um fyrirgefningu. Að þessu sinni haldið í Skálholti dagana 10. – 13. september 2020. Hugleiðslubænin „Kyrrðarbæn (Centering Prayer)“ verður iðkuð ásamt fræðslu um fyrirgefninguna og mikilvægi hennar.

Einnig verða í boði léttar flæðandi líkamsæfingar (Jóga) ásamt djúpslökun (Jóga Nidra).

Allt umhverfi Skálholts býður upp á frið, kyrrð og næringu fyrir líkama, sál og anda og styður þar af leiðandi fullkomlega við þá upplifun sem á sér stað í gegnum ferli fyrirgefningarinnar.

Mæting: Fimmtudaginn 10. september, kl. 18:00. Dagskránni lýkur sunnudaginn 13. september kl. 14:00.

Umsjón: Sr. Elínborg Gísladóttir og Sigurbjörg Þorgrímsdóttir, djáknakandídat, leiðbeinendur Kyrrðarbænarinnar.

Verð: kr. 40.500,-. Innifalið í verðinu er námskeið, fullt fæði og sér herbergi með baði.

Skráning fer fram á vef Skálholts www.skalholt.is, eða á netfanginu holmfridur@skalholt.is eða í síma 486-8870 (Hólmfríður). Nánari upplýsingar á netfanginu sigurth@simnet.is (Sigurbjörg) eða í síma 861-0361 (Sigurbjörg).