welcomingprayerNámskeið í Fagnaðarbæn (Welcoming prayer) verður haldið í Guðríðarkirkju laugardaginn, 17. janúar, 2015 frá kl. 09:00 til 17:00.

Hvað er Fagnaðarbæn?

Fagnaðarbæn er leið/aðferð til að samþykkja nærveru og verkan Guðs í líkamlegum og tilfinningalegum viðbrögðum okkar gagnvart atburðum og aðstæðum í daglegu lífi.

Tilgangur Fagnaðarbænarinnar er að dýpka samband okkar við Guð með því að játast nærveru hans og verkan í hversdagslegum athöfnum okkar. Fagnaðarbænin hjálpar okkur til  að sleppa tökunum á ýmsu því sem íþyngir okkur og veitir okkur þannig aukið innra frelsi. Fagnaðarbænin er frábær aðferð til að styðja við umbreytinguna sem hefst í Kyrrðarbæninni (Centering prayer).

Umsjón með námskeiðinu hafa: Grétar Halldór Gunnarsson, guðfræðingur og Sigurbjörg Þorgrímsdóttir, djáknakandídat og leiðbeinandi Kyrrðarbænarinnar.

Námskeiðsgjald kr. 5.000,-. Innifalið: Námskeið, námskeiðsgögn og matur.

Skráning og nánari upplýsingar hjá Sigurbjörgu í síma 861-0361 og/eða á netfangi: sigurth@simnet.is

Nánari upplýsingar má finna hér.