mosfellregnbogi„Gríptu daginn“ – Kyrrðarsamvera á aðventunni verður í Mosfellskirkju, Mosfellsdal, laugardagana 29.nóv. og 13.des. kl.9 – 12 . Komdu og vertu með! Við göngum inn í kyrrðina kl. 9.00 og iðkum  „kyrrðarbænina“. Eftir setuna göngum við út í sólarupprás og morgunkyrrð, njótum útiveru og  förum í stuttan göngutúr í dalnum. Samverunni líkur í kirkjunni ca.kl.12.
Umsjón með stundinni hafa Ragnheiður Jónsdóttir og Sigurbjörg Þorgrímsdóttir. Nánari upplýsingar hjá Ragnheiði í síma 869-9882