LandakirkjaNámskeið verður haldið í aðferð Kyrrðarbænarinnar (Centering Prayer) í Landakirkju, laugardaginn 16. nóvember kl. 10:00-15:00. Kyrrðarbænin er eitt einfaldasta form hugleiðslubænar sem um getur og allir geta lært það og stundað. Kyrrðarbænin er ákveðin aðferð en um leið bæn sem snýst um að gefast Guði, handan orða, hugsana og tilfinninga, handan alls sem við getum ímyndað okkur. Opna hug og hjarta til þess að vera vakandi fyrir því sem er, án þess að tjá það með orðum.
Bókin, Vakandi Hugur, Vökult Hjarta eftir Thomas Keating verður til sölu á námskeiðinu og kostar 2000 kr. Umsjón er í höndum Þorvaldar Halldórssonar Margrétar Scheving og Margrétar Eggertsdóttur. Þátttökugjald á námskeiðið er kr. 1500. Léttar veitingar í hádeginu. Skráning í síma 6590773 og 8642916 eða verab(hja)simnet.is og oddnygardarsdotti(hja)gmail.com