Tímasetning
6. júní 2020
09:00 - 11:00


  • “Gríptu daginn” –  Íhugun – kyrrð – útivera. Kyrrðardagar í Mosfellskirkju verða laugardagana 6. júní og 13. júní 2020
    Á þessum laugardögum verður dagskrá frá 9:00 til 11:00 í og við Mosfellskirkju
    Á kyrrðardeginum förum við í hvarf og tökum okkur hlé frá daglegri önn.
    Þögnin og kyrrðin veita tækifæri til íhugunar, að mæta sjálfum sér og Guði, að sjá líf sitt í nýju ljósi, vinda ofan af og láta uppbyggjast og endurnærast á sál og líkama. Uppbygging er þannig að byrjað er á íhugun að hætti Kyrrðarbænarinnar, þá er gengið um í dalnum og að lokum er samverustund í kirkjunni.
    Umsjón með deginum hafa prestar safnaðarins og veita þær gjarnan upplýsingar. Skráning er á netfangi safnaðarins, lagafellskirkja@lagafellskirkja.is eða í síma 5667113 á  skrifstofu frá 9 -13Ekkert gjald er tekið fyrir Kyrrðardaga og eru allir sem áhuga hafa velkomnir.